Bloggsíða 5.flokks kvenna

Upplýsingasíða 5.flokks kvenna

22.02.2012 08:11:31 / irstelpur5

Fyrsti leikur í Reykjavíkurmóti

Hæ stelpur....

Nú er komið að fyrsta leik í Reykjavíkurmótinu.
Hann er á laugardaginn 25. feb á KR velli
A - lið kl 09:00
B - lið kl 09:50.

Endilega staðfestið sem fyrst hvort þið komist eða ekki.
Þegar allar eru búnar að staðfesta þá set ég liðin hér inn.

Kv Biddý

» 11 hafa sagt sína skoðun

20.02.2012 11:23:43 / irstelpur5

Unglingadómaranámskeið... FYRIR FORELDRA og einstaklinga eldri en 15.ára..

Unglingadómaranámskeið verður haldið í ÍR heimilinu fimmtudaginn 23. febrúar kl. 19:00.  Við hvetjum áhugasama foreldra til að skrá sig og mæta á námskeiðið. />

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍR í ÍR heimilinu fimmudaginn 23. febrúar og hefst kl. 19:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á irknattspyrna@hotmail.com og magnus@ksi.is

Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið.

Við viljum fá sem flesta foreldra til að mæta á námskeiðið og taka prófið. Þetta er ekki erfitt próf. Viðkomandi aðilar geta þá látið gott af sér leiða og aðstoðað félagið við dómgæslu í yngriflokkunum í framtíðnni.



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 14:46:30 / irstelpur5

BOLLA BOLLA BOLLA!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2012 15:53:14 / irstelpur5

Æfingin í dag föstudag 10. febrúar

Hæ stelpur

Ég kemst því miður ekki úr vinnu í dag til þessa að þjálfa og Aníta Björk kemst ekki heldur.

Hann Hrannar sonur hans Dóra kemur og þjálfar ykkur í dag. Hann er alveg frábær strákur bæði klár í fótbolta og að þjálfa.

Ég bið ykkur um að vera góðar og kurteisar við hann eins og þið eruð alltaf við mig.

Ég sé ykkur svo á þriðjudag inni í Fellaskóla


Góða helgi

Kv Biddý

P.S upplýsingar um Reykjavíkurmótið eru komnar hér inn til vinstri undir Reykjavíkurmót 2012

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2012 06:56:46 / irstelpur5

Fjáröflun, reikningur

Hérna er Reikningsnúmer til að leggja inná vegna fjáröflunar
0115-26-007075  kt 670301-3030

kveðja Foreldraráð 5. flokks

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2012 12:33:14 / irstelpur5

Fjáröflun

sæl ;) 
Við ætlum að vera með fjáröflum fyrir stelpur vegna móta sem eru framundan.

Við afhentum hvað vörur eru  til sölu og pöntunarblað  þriðjudaginn 31 jánúar og þær eiga að skila því svo viku seina eða 7 febrúar. :haha:
Við ætlum svo að reyna afhenta vörur  miðvikudaginn 8 febrúar eða Föstudaginn 10 febrúar

 Svo ætlum við verða með eitthvað húllum hæ 10 febrúar fyrir stelpurnar eftir æfingu. Nánar um það síðar.

Foreldraráð.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2012 14:41:18 / irstelpur5

Æfing fellur niður í dag föstudaginn 27. janúar

Hæ stelpur

Vegna veðurs fellur æfingin niður í dag:( 
Næsta æfing á þriðjudaginn. 

Kv Biddý

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 12:15:19 / irstelpur5

Æfing fellur niður í dag miðvikudag 25. janúar

Hæ stelpur og foreldrar

Það er því miður engin æfing í dag vegna þess að völlurinn er á kafi. Ég ætla núna fljótlega að reyna að gera eitthvað skemmtilegt með ykkur í staðinn fyrir allar þessar æfingar sem hafa fallið niður. Foreldrar ykkur er frjálst að koma með hugmyndir af einhverju skemmtilegu félagslegu sem við gætum gert.

Ég vona að það verði æfing á föstudag. 

Kv Biddý

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 14:35:19 / irstelpur5

Æfing í dag föstudag 20. jan fellur niður

Elsku stelpur og foreldrar

Því miður eru veðurguðirnir ekki með okkur í liði þessa dagana. Ég var að fá símtal frá Leiknisheimilinu og þar er allt á kafi, þannig að aftur verðum við að fella niður æfingu,

Mér þykir þetta rosalega leiðinlegt :(

En það er æfing á þriðjudaginn næst.

Sjáumst hressar þá og góða helgi

Kv Biddý

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2012 14:24:09 / irstelpur5

Æfing fellur niður í dag miðvikudag 18. janúar

Hæ stelpur.

Það er búið að fella niður allar æfingar á ÍR svæðinu í dag vegna veðurs.

Næsta æfing er á föstudaginn 20. janúar á Leiknisvelli kl 16:30.

Sjáumst þar...

Kv Biddý

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2012 14:39:13 / irstelpur5

Æfing í dag

Hæ stelpur...

Eru margar sem komast ekki á æifngu í dag ?

þarf að fá að vita það sem fyrst.

Kv Biddý

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2012 10:33:26 / irstelpur5

Hotyoga

Sælir foreldar og stelpur
 
Nú höfum við fengið tilboð í sporthúsinu í hotyoga.
 
Við verðum með einkatíma á laugardagsmorgnum frá kl 9:30 - 10:30.
Vegna ungs aldurs þá er ekki hægt að senda dömurnar einar á staðinn
svo þarna er kærkomið fyrir foreldra og börn að æfa saman eitthvað
nýtt.
Verðið er háð fjölda þátttakenda:  Tíminn kostar 20.000 og salurinn
tekur 45-50 manns.  Þannig ef við náum 40 manns þá kostar tíminn 500
kr per einstakling.

Ef nægur áhugi og þátttaka fæst þá byrjum við laugardaginn 15. jan 2012


Endilega látið vita sem fyrst svo að við getum staðfest þetta.
 
Kv Biddý

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.01.2012 21:23:40 / irstelpur5

Æfing á morgun

Hæ stelpur 

Gleðilegt ár :)

Það er æfing á morgun miðvikudag 4. jan 2012 á ÍR velli kl 17:15 ef veður leyfir en ef frostið er meira en -6 gráður þá er ekki æfing. Fylgist því með blogginu :)

Hlakka til að sjá ykkur 

Kv Biddý

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2011 19:13:52 / irstelpur5

Jólin


Hæ stelpur

Núna eruð þið komnar í jólafrí. Næsta æfing er miðvikudaginn 4. janúar 2012 á ÍR-velli kl 17:15 :)

Mig  langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Ég hlakka mikið til að sjá ykkur á nýju ári 

Hafið það gott um jólin

Kv  Biddý

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.12.2011 13:13:26 / irstelpur5

Þorrablót ÍR

Sælir ÍR ingar! Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar. Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna. Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting. Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR, hjá Braga í Leiksport Hólagarði, í Fiskbúð Hólmgeirs í Mjódd og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku. Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-) Athugið að það er 18 ára aldurstakmark. http://www.ir.is/UmIR/Thorrafagnadur/

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 24738
Þínir flokkar
Tenglar
Tenglar
Íslandsmót KSÍ